miðvikudagur, 4. desember 2013

Here I go again!

Já, langt er nú síðan ég hef verið í bloggheimum og í raun á þetta ekki að vera blogg - eins og blogg er skilgreint. Ég ætla ekki að deila með ykkur dýpstu hugsunum mínum og pælingum heldur er þetta meira hugsað til að deila dútlinu mínu - þá aðallega heklinu mínu.

Ég fékk þessa hugmynd núna í nóvember. Ég er nefnilega að hekla flest allar jólagjafirnar þessa dagana og er því mikið að "browsa" internetið í leit að góðum hugmyndum. Ég er búin að detta inn á mörg svona blogg þar sem uppskriftir eru sýndar, sem og myndir, og langar að gera það sama. Ég hekla mikið eftir enskum uppskriftum - einfaldega vegna þess að það er auðveldara og betra aðgengi að þeim - og er nú orðin frekar ryðguð í íslenskum uppskriftum.

Hér inn ætla ég mér að setja heklið mitt sem og uppskriftir að því bæði á ensku og íslensku (og auðvitað slóð á upprunalega uppskrift) séu upprunalegu uppskriftirnar fríar. Séu þær ekki fríar mun ég láta fylgja með hvaðan ég fæ uppskriftina. :)

Í þessari fyrstu færslu ætla ég ekki að setja inn neinar myndir eða uppskriftir enda eru jólagjafir leyndarmál og alls ekki óhætt að birta einhverjar slíkar hér. Ég er þó búin að vera dugleg að taka myndir af verkunum mínum, sem og verkum í vinnslu, og get því sett inn ítarleg blogg eftir jólin. ;)

Ég vona að með tíð og tíma verði bloggið mitt bæði gagnlegt og skemmtilegt fyrir alla þá sem hafa áhuga á hekli. :)

Með heklkveðju,
Ninna.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli